Já núna er ég loksins
komin heim (eða það eru reyndar tíu dagar síðan) en já þessi
spánar ferð var bara ein stór martröð og ég er svo ótrúlega
fegin að vera komin heim! Ég skal lýsa þessari ferð með stuttum
orðum!
Pabbi
slasaðist
Húsið sem við áttum
að fá með einkasundlauginni var allt í einu selt
Maðurinn sem var að
setja fólk í húsin er svo kalkaður að hann tvíbókaði hitt
húsið sem við áttum svo að fá
Svo hann lét okkur
fá hús á byggingar svæði sem var ömurlegt þurftum að keyra í
allar búðir líka matvörubúðir
En við gátum labbað
á ströndina en gerðum það held ég bara tvisvar því pabbi var
meiddur og mátti hvorki fara í sund né á
ströndina!
Húsið var fínt en
skuggi var í garðinum,enginn bekkur til að liggja á, engin
loftkæling uppi svo við sváfum öll á dýnu á gólfinu í
stofunni, ekkert sjónvarp en maðurinn lánaði okkur
sitt,
Þetta hús var samt
flott með risa stóru nudd baði og á þremur hæðum en margir
gallar í húsinu t.d það var svo oft vatnslaust!
Rosalega sjaldan
sól bara rigning og þrumur og ef það kom sól þá voru alltaf
ský á lofti!
Fötin í búðunum
voru ógeðsleg þetta árið en einkurneggin náði ég að eyða
hundraðþúsund í föt á mig, og e-ð á Atla og Hrönn!
Fórum samt í
geðveikan garð
sem heitir Terra mítica, og var svona tívolígarður í mörgum
löndum, t.d egyptalandi og voru þá píramídar, asíu og fleira
klikkað flott og ótrúlega gaman
Kíktum til benidorm
og þar var sól eins og alltaf,
Fórum í búðir á
hverjum degi og náðum alltaf að versla e-ð!
Á kvöldin fórum við
síðan á
sundlauga barinn og þar var sko grenjað úr sér augun. Þar er
kona sem syngur og fólkið á barnum fer á gólfið og dansar,
ein ýkt fyndin kona sem var alveg eins og Dísa frænka dansaði
svo ótrúlega fyndið að það voru allir farnir að hlæja, svo
hló hún svo fyndið og var bara fyrir fólkinu sem var að dansa
því hún ætlaði aldrei að ná sporunum í dönsunum síðan hristi hún
sig og geiflaði í framan og var svo ýkt e-ð henni fannst hún
vera dansa svo flott 
Síðan var frænka
mín að eiga á meðan við vorum úti og fengum við þær fréttir
að hún eignaðist strák, og allir rosalega happy, en svo um
kvödið fengum við þær fréttir að hann væri nær dauða en lífi.
En sem betur fer heppnaðist aðgerðin vél og er hann orðin
frískur núna 
Þann 7.ágúst þá
versnaði allt, því við fengum að heyra hræðilegar fréttir. Að
hann Máni Magnússon æsku vinur minn, sem átti að vera með
okkur úti, hafi látist. Og ég er ekki enþá að trúa því:’( að
svona ungur strákur skuli fara frá okkur, svona snemma, þetta
er einhvernvegin svo óraunverulegt. En sagt er að þeir deyja
ungir sem guðirnir elska og vonum við að hann sé kominn á
betri stað núna. Og munum við sakna hans mjög sárt en hugsum
hlítt til hans á hverri stundu (K)
Síðan átti hún
Freyja sæta afmæli og til hamingju með það orðin 17 ára stór
stelpa(K)
Og svo loksins kom
ég heim 10 águst
Og
þá hitti ég Hrönn og Atla minn var búin að sakna þeirra alveg
svakalega mikið! En síðan er hún Hrönn bara farin núna og
kemur ekki heim fyrren 28 og hefur það vonandi gott, en
leiðinlegt að hún sé að missa af menningarnótt,en heppin
er hún samt að missa frekar af henni en ekki
verslunarmannahelginni eins og ég
en eins og
allir vita að þá er menningarnóttin í kvöld
og ég og Alta
förum líklegast nirræibæjj til að horfa á
flugveldarnar en
nennum ekki að hanga þar því það er spáð rigningu
og núna
er Freyja líka farin til Mexico og verður þar í 9 mánuði.
Freyja hver á þá að halda uppi stuðinu á skólaböllunum og
klípa í tær
hehe og ráðast á fólið á djamminu ! söknum þín
Freyja.
Á
meðan Hrönn er í burtu er ég búin að vera svo einmana! Þú átt
að koma heim Hrönnsla.
En
núna er hann sverrir líka kominn heim og verð ég að fara
heimsækja hann. Ha Sverrir hvenær á að bjóða mani í heimsókn
?
En ég er farin adios -Fríða